Nýji meirihlutinn og survivor

Þegar ég spái í það finnst mér eitthvað líkt með nýja meirihlutann og survivor. Eintóm svik og prett,baktöl og og enginn veit allan sannleikann. Auðvitað vilja flestir verða borgastjórar þannig að það er svosem ekkert skrýtið. En auðvitað eiga menn að geta treyst. Svo finnst mér þetta fatakaupamál alveg út úr öllu korti ég meina ef honum langaði svona ofboðslega í hátískuföt gat hann alveg farið út í búð og keypt sér fötin fyrir sína peninga en ekki flokksins. Þetta er bara mín skoðun.

Okey getum við svona 1 sinni ekki verið stöðugt að skipa nýjan meirihluta

Okey getum við svona 1 sinni ekki verið stöðugt að skipa nýjan meiri hluta eða borgarstjóra maður fer bara bráðum að fara að hætta að fylgjast með því hver er borgarsjóri og hver ekki og líka hver er í meiri eða minnihlutanum og hver ekki. Ég vona að Vilhjálmur verði aftur borgarstjóri því ég held að ég treysti honum betur en Ólafi F. Þó Ólafur F. sé örugglega fínn karl þá held ég að ég treysti Vilhjálmi beturWink  Ja þetta er bara mín skoðun.
mbl.is Töldu Margréti með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei þvert á móti

Nei þetta var alls ekki vondur dagur hjá mér.Ég fór á skíði í dag -rosa gaman- svo þetta var ekki versti dagurinn minnWink .

Vil ekki sjá evruna inni í íslensku samfélagi!!

Ég vil ekki sjá evruna inni í íslensku samfélagi. Krónan er alveg nógu góð fyrir okkur íslendinga og ég sé engan tilgang með þessari blessuðu evru. Hvað hafa bankarnir á móti krónunni?, evran er ekkert betri gjaldmiðill en krónan og það þýðir lítið fyrir bankana að vilja krónuna þegar stýrivextir eru háir en segja svo "nei við viljum evruna" þegar stýrivextirnir fara lækkandi. Þetta á ekkert að fara eftir hentistefnu bankana, annað hvort er krónan eða evran og það er bara eitt sem ég vil segja við bankana evran er ekki töfralausn.


mbl.is Seðlabanki andvígur evrubókhaldi fjármálafyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótakerfið er til skammar

Kvótakerfið er til háborinar skammar fyrir íslensku þjóðina. Því segjum sem svo að einn karl eigi kvótann í litlum kaupstað og hann á börn sem eru flutt í burtu. Svo hrekkur hann upp af einn daginn og ef börnin vilja selja kvótann í burtu til að fá peninginn til að eiga fyrir flottu húsunum og bílunum sínum í Reykjavík. Hvað gerist þá? Nú þá missa flest allir í þessum kaupstað vinnuna. Nú finnst mér að stjórnvöld verði að grípa í taumana því þetta kvótakerfi okkar Íslendinga er til háborinar skammarShocking
mbl.is Íslensk stjórnvöld breyti fiskveiðistjórnunarkerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að mínu mati á EKKI að rífa húsin

Að mínu mati á EKKI að rífa húsin af því að þau eru svo gömul og svo að mínu mati mundi ekki passa ef sum húsin væru gömul en hin ný. Laugavegurinn yrði líka allt öðruvísi en áður og það yrði mjög skrýtið að sjá hann svoleiðis. Það á að friða þessi húsInLove

 


mbl.is Ráðherra friði Laugavegshús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað festist hún ekkert sjálfkrafa!!

Auðvitað festist bensíngjöfin ekki sjálfkrafa. Maðurinn getur ekki bara verið að keyra á eðlilegum hraða og svo allt í einu bara...úpps. Maðurinn hefur að sjálfsögðu verið að keyra með besíngjöfina í botni. Annars veit ég ekki mikið um bíla svo það gæti alveg hugsanlega gerstWoundering  En þá hefur verið eitthvað mikið að bílnum.
mbl.is Bensíngjöfin festist í botni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hneyksli!!

Mér finnst þetta algjört hneyksli þetta á ekki að líðast. Þetta er forljótt og þeir sem gera þetta eru að mínu mati bara einfaldlega Bandit  Mér finnst líka að þeir eigi bara að þrífa þennan sóðaskap upp sjálfir og læra að taka ábyrð á eigin gjörðum. Þá munuð þeir kannski hugsa sig tvisvar um áður en þeir krassa svona aftur. Maður getur varla keyrt um miðbæinn án þess að rekast á svona sóðaskap. Þetta er að mínu mati til háborinnar skammar fyrir borgina.
mbl.is Krotað á veggi fjölda húsa í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að Völvan hafi rétt fyrir sér að hluta til

Ég held að völvan hafi rétt fyrir sér með að ríkistjórnin falli  Woundering   Samt spái ég að það verði engar náttúruhamfarir GetLost eins og hún spáði líka. En ég held samt að hún hafi líka rétt fyrir sér með hruni peningamarkaðiWoundering og ég er líka samála að mogginn haldi sjó.Bless í bili


mbl.is Völvan spáir stjórnarslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný bloggsíða á nýju ári

Hæ hæ öll

 Mér fannst fínt að stofna nýja bloggsíðu á nýju ári og óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs  Wink   Mér fannst skaupið bara ágætt. Það voru nokkur atriði sem voru nokkuð fyndin  Grin   En hér mun ég blogga um ýmislegt og vonandi mun ykkur líka bloggið mitt Wink Ég ætla að verða rosa dugleg að blogga Wink Ég ætla bæði að blogga um fréttir og fleira.

Hér kemur ekta íslensk áramótastemning...

http://youtube.com/watch?v=hIC-2o-rbdQ

Bæ í biliSmile

 


« Fyrri síða

Höfundur

Madda
Madda

Ung kona sem ætlar sér stóra hluti.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 184

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband